Erfðanefnd landbúnaðarins

Styrkveitingar á vegum erfðanefndar landbúnaðarins 2023

Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að því hlutverki. Vísað er til stefnumörkunaráætlunar erfðanefndar varðandi nánari áherslur nefndarinnar, sjá vefsíðu nefndarinnar; www.agrogen.is

Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:

• rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
• lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
• aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
• kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra.

Einstaklingar og félagasamtök eru hvött til að sækja um styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að stuðla að varðveislu og/eða sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í landbúnaði. Að jafnaði verða veittir styrkir allt að 2 milljónum. Sérstök eyðublöð má finna á heimasíðu erfðanefndar  www.agrogen.is.

Umsóknum skal skilað til Birnu Kristínar Baldursdóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes (birna@lbhi.is) fyrir 28. apríl 2023

Heimilsfang

Hvanneyri, 311. Borgarnesi

Tölvupóstur

birna@lbhi.is

Vertu með okkur