Erfðanefnd landbúnaðarins

Lerki

Heim 5 Skógur 5 Lerki

Rússalerki (Larix sukaczewii, L. decidua x sukaczewii) hefur verið mest gróðursetta trjátegundin í íslenskri skógrækt í flestum árum undanfarna tvo áratugi. Fræið er að mestu flutt inn frá finnskum frægörðum. Rússalerki hentar einkum á Norður- og Austurlandi. Skógrækt ríkisins hefur stundað kynbætur á lerki síðan 1993 og vonir standa til að framleiðsla á blendingsfræi hefjist eftir fá ár. Blendingurinn, sem ber yrkisheitið Hrymur, varð til við víxlun eins klóns af Evrópulerki sem valinn var í Hallormsstaðaskógi og um 20 Rússalerkiklóna, sem einnig voru valdir hérlendis. Hrymur hefur reynst vel um land allt.

Heimild: Erfðanefnd landbúnaðarins (2009). Íslenskar erfðaauðlindir – Landsáætlun um verndun erfðaauðlinda í íslenskri náttúru og landbúnaði 2009-2013. Reykjavík: Erfðanefnd Landbúnaðarins.

Heimilsfang

Hvanneyri, 311. Borgarnesi

Tölvupóstur

birna@lbhi.is

Vertu með okkur