Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:
- Rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
- Lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
- Aðgerðir er stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
- Kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra.
- Einstaklingar og félagasamtök eru hvött til að sækja um styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að stuðla að varðveislu og/eða sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í landbúnaði.
Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu 200-900 þúsund. Sérstök eiðublöð má finna hér
Umsóknum skal skilað fyrir 8. maí 2019 til Birnu Kristínar Baldursdóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes – birna@lbhi.is