Erfðanefnd landbúnaðarins
Leiðir til varðveislu nytjaplantna
Plöntur
Fóður- og landgræðslujurtir
- Safna erfðahópum af háliðagrasi, vallarfoxgrasi, hvítsmára og rauðsmára kerfisbundið í gömlum túnum til varðveislu hjá Nordgen.
Koma nýjum yrkjum í varðveislu hjá NordGen eftir því sem þau koma á markað. - NordGen verði falið að varðveita verðmætan og áhugaverðan kynbótaefnivið, einkum af byggi, án þess þó að hann verði aðgengilegur öðrum („In Trust Conservation“).
- Skrásetja fleiri gömul íslensk tún með hnitsetningum í sérstaka skrá.
- Hvetja eigendur gamalla túna til óbreyttrar nýtingar en að þeir láti annars vita ef túnið er brotið eða nýtingu þess breytt verulega á annan hátt.
Mat- og lækningajurtir
- Koma fræi af nýjum yrkjum í varðveislu hjá NordGen eftir því sem þau koma á markað.
- Safna fræi af áhugaverðum villtum efnivið.
- Styrkja samstarf við grasagarða og byggðasöfn til að varðveita gamlar nytjaplöntur í klónasöfnum.
- Viðhalda og bæta klónasöfn eftir því sem við á.
- Rannsaka erfðabreytileika og næringargildi íslenskra villijurta.
- Kanna möguleika á ræktun og nýtingu íslenskara villijurta til matvælagerðar og lækninga.
- Meta í samstarfi við NordGen hvort ástæða sé til þess að varðveita valda
erfðahópa villtra nytjaplantna in situ.
Heimild: Erfðanefnd landbúnaðarins (2014). Íslenskar erfðaauðlindir – Landsáætlun um varðveislu og sjálfbæra nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði 2014-2018. Reykjavík: Erfðanefnd Landbúnaðarins